Starf umsjónarmanns íþróttamannvirkja
Reykhólahreppur óskar eftir að ráða til sín umsjónarmann íþróttamannvirkja, frá og með 1. maí 2021. Um er að ræða 100% starf. Reykhólahreppur vill verða heilsueflandi sveitarfélag sem leggur áherslu á hreyfingu og félagslegt gildi samveru. Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2021.
Starfssvið umsjónarmanns íþróttamannvirkja.
• Umsjónarmaður Grettislaugar, íþróttahúss og íþróttavalla, ber ábyrgð á rekstri og daglegri stjórnun þeirra og einnig starfsmanna. Umsjónarmaður gengur vaktir og leysir af.
• Aðstoðar við fjárhagsáætlunargerð, sér um uppsetningu vaktarplana og innkaup.
· Sér um bókanir og þrif.
· Sér um minniháttar viðhald.
· Samskipti við þjónustuþega.
Hæfniskröfur
• Starfsreynsla við rekstur og stjórnun æskileg
· Iðnmenntun æskileg.
· Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
· Lipurð og færni í samskiptum, jafnt við fullorðna sem börn.
· Góð íslenskukunnátta
· Kostur ef viðkomandi hefur lokið námskeiði sundlaugarvarða.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsókn skal send á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, 380 Reykhólahrepp eða á netfangið skrifstofa@reykholahreppur.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Birna Erlingsdóttir í síma 430-3200 eða á netfangið sveitarstjori@reykholar.is