Starfsfólk vantar á Báta- og hlunnindasýninguna
Á Báta- og hlunnindasýninguna vantar eftirtalið starfsfólk:
Starfsmann í 100% stöðu sumarið 2017 til að sinna sýningu um æðardún, breiðfirska báta og veita upplýsingar til ferðamanna um Vestfirði.
Ráðningartími er 3 mánuðir, júní – ágúst. Sýningin er opin alla daga kl. 11.00 -17.00 og nokkur kvöld yfir sumarið.
-
Sóst er eftir jákvæðum og samviskusömum einstaklingi eldri en 20 ára sem hefur gaman af samskiptum við fólk og vill setja sig inn í mannlíf Breiðafjarðar á fyrri tímum.
-
Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á ensku og viðbótartungumál er kostur.
-
Hlutverk starfsmanna Báta- og hlunnindasýningarinnar er að afgreiða á sýningunni og í tengdri verslun, veita leiðsögn um sýninguna og miðla upplýsingum um héraðið. Starfsmenn sinna einnig kaffisölu, uppgjöri, skýrsluhaldi og munaskráningu. Miðað er við að vinnutími sé frá 10.30 - 17.30 en getur verið sveigjanlegur eftir verkefnum.
Leitað er að aðila
-
til að aðstoða við markaðssetningu og skipulagningu viðburða sem haldnir eru í tengslum við Báta- og hlunnindasýningna. Þetta eru Bátadagar, hluti Reykhóladaga og annars konar samkomur.
Unglingar (13-16 ára), nokkur störf og mismunandi starfshlutföll í boði
-
Vinnutími kl. 10.30-17.30, getur líka verið einhver kvöld og breytilegur á Reykhóladögum.
-
Tilgreinið í umsókn hversu háu starfshlutfalli sé óskað eftir og hvaða frídögum væri óskað eftir og hvers vegna þið sækið um.
-
Starfið felst í því að halda útisvæði hreinu, baka, afgreiða í eldhúsi, annast þrif og vinna létt tilfallandi störf.
-
Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir, duglegir og samviskusamir og hafi gaman af samskiptum við fólk, séu kunnugir Reykhólahreppi og því sem hann hefur að bjóða.
Báta- og hlunnindasýningin er opin alla daga sumarið 2017 frá 1. júní til 31. ágúst.
Umsóknir sendist á info@reykholar.is fyrir 10. apríl. Upplýsingar veittar í sama netfangi.
Harpa Eiríksdóttir,
framkvæmdastjóri Báta- og hlunnindasýningarinnar á Reykhólum.