12. ágúst 2013 | vefstjori@reykholar.is
Starfsfólk vantar á þangvertíð
Þörungaverksmiðjan hf. leitar að duglegum og jákvæðum starfsmönnum í ýmis störf sem tengjast þangvertíð haustið 2013. Þangvertíðin hófst í apríl og stendur til októberloka eða þar um bil.
Æskileg reynsla og hæfni:
- Öryggisvitund.
- Frumkvæði.
- Samviskusemi og vandvirkni.
- Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknum skal skila á netfangið info@thorverk.is.
Frekari upplýsingar, m.a. um launakjör, veitir Garðar Jónsson framleiðslustjóri í síma 434 7740 eða í netfanginu gardar@thorverk.is.
► Heimasíða Þörungaverksmiðjunnar hf. á Reykhólum