23. mars 2016 |
Starfsmaður í mötuneyti óskast
Reykhólahreppur óskar eftir liðsmanni í mötuneyti Reykhólahrepps frá og með 1. júní. Starfsmaður þarf að hafa góða þjónustulund og samskiptahæfni, vera reglusamur og sjálfstæður í störfum. Vinnutími eftir samkomulagi, en unnið er aðra hverja helgi.
Laun fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og stéttarfélaga.
Frekari upplýsingar veitir matráður í síma 434 7805.
Senda skal umsókn á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a, 380 Reykhólahreppi, eða í netfangið skrifstofa@reykholar.is.
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl. Í umsókn komi fram helstu upplýsingar.