9. febrúar 2010 |
Starfsmann vantar á Hólabæ á Reykhólum
Leikskólakennara eða aðstoðarmann á vantar á leikskólann Hólabæ á Reykhólum. Hólabær er lítill leikskóli þar sem eru 25 börn á þremur deildum, Stubbadeild, Stjörnudeild og Snillingadeild. Starfsmann vantar á Stjörnudeild þar sem eru tíu börn þegar flest er. Börnin þar eru á aldrinum tveggja og hálfs til fjögurra ára. Starfið er laust um næstu mánaðamót. Björg leikskólastjóri gefur allar nánari upplýsingar í síma 434 7832.
Auglýsing um starfið er að venju birt undir Laus störf í valmyndinni vinstra megin.