6. nóvember 2017 | Sveinn Ragnarsson
Starfsmann vantar við Grettislaug
Auglýst er til umsóknar hlutastarf og afleysingar sundlaugarvarðar við Grettislaug.
Um er að ræða fimmtudaga frá 17:00 til 21:30 auk annarrar hverrar helgar, þ.e. föstudaga frá 17:00 til 21:30 og laugardaga frá 14:00 til 18:30.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og að auki þurfa allir sem við laugina starfa að standast þar til gert sundpróf. Nánar er hægt að lesa um sundprófið á vef Umhverfisstofnunar:
http://ust.is/atvinnulif/hollustuhaettir/sundstadir/haefnisprof-starfsmanna/
Umsóknir berist á; grettislaug@reykholar.is