Tenglar

23. ágúst 2012 |

Stefnt að tónlistarkennslu á Reykhólum

Borgar Þórarinsson tónlistarkennari á Hólmavík hefur fallist á að vera með tónlistarkennslu á Reykhólum ef áhugi reynist nægur. Hann kennir á gítar, bassa og trommur og einnig kennir hann byrjendum á píanó. Ef af verður mun hann að líkindum koma tvisvar í viku og yrði verð fyrir tíu vikur 35 þúsund krónur. Nemendur gætu verið á öllum aldri. Skráið ykkur sjálf eða börnin ykkar sem allra fyrst hjá Guðrúnu Guðmundsdóttur á Reykhólum í síma 865 5237.

 

Borgar er úr Aðaldal en fluttist til Hólmavíkur fyrir ári. Hann hefur spilað í ýmsum hljómsveitum, þar á meðal með Geirmundi Valtýssyni.

 

Athugasemdir

Steinunn Ó. Rasmus, laugardagur 25 gst kl: 13:02

Flott hjá þér Guðrún mín að taka málin í þínar hendur. Tónlistaruppeldi barna er allt of oft vanmetið en tónlistin styður og styrkir annað nám.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31