Tenglar

23. apríl 2010 |

Stefnt að umhverfisvottuðum Vestfjörðum

Sigurður Atlason, formaður Ferðamálasamtaka Vestfjarða.
Sigurður Atlason, formaður Ferðamálasamtaka Vestfjarða.
„Ég hef á tilfinningunni að ráðstefnan hafi þegar gert það gagn að nú verði ekki aftur snúið í þessum málum og ég er mjög bjartsýnn á að Vestfirðingar séu tilbúnir að ræða þessi mál af alvöru og hrinda þeim í framkvæmd“, segir Sigurður Atlason, formaður Ferðamálasamtaka Vestfjarða, um ráðstefnuna Umhverfisvottaðir Vestfirðir sem haldin var á Núpi í Dýrafirði um síðustu helgi.

 

Á ráðstefnunni voru haldin fjölbreytt erindi. Rætt var um stöðu umhverfismála á Íslandi og hvaða aðgerða sé hægt að grípa til, auk þess sem þessi mál voru sett í hnattrænt samhengi. Fjallað var um almennt viðhorf til náttúrunnar og sagðar reynslusögur af vottun einstakra fyrirtækja, með áherslu á mikilvægi vottunar fyrir markaðsstarf og daglegan rekstur. Loks var sagt frá sérstökum verkefnum, svo sem hugmyndum um rafbílavæðingu Íslands.

 

Þá var tæpt á mikilvægi þess að Ísland í heild verði umhverfisvottað. „Heimurinn allur, ekki einungis Ísland, stendur nú á tímamótum og er nauðsynlegt að taka marga grunnþætti lífernis okkar til endurskoðunar til að draga úr neikvæðum áhrifum okkar á jörðina. Íslenskt samfélag hefur að auki orðið fyrir áfalli. Mikilvægt er að uppbygging og framtíð landsins byggi á sjálfbærni og sterku siðferði. Umhverfisvottun Íslands er ein leið til aukinnar sjálfbærni í lifnaðarháttum okkar og hefði jafnframt í för með sér margvísleg jákvæð áhrif á atvinnu- og mannlíf“, sagði í erindi frá Náttúrustofu Vesturlands.

 

Ferðamálasamtök Vestfjarða stefna að því að fylgja ráðstefnunni eftir í samvinnu við Fjórðungssamband Vestfirðinga. Markmiðið er að umhverfisvottun Vestfjarða komist á dagskrá Fjórðungssambandsins og að vestfirsk sveitarfélög sameinist um að stefna að slíkri vottun.

 

Áhugasömum er bent á að hægt er að sjá ráðstefnuritið á vef Ferðamálasamtaka Vestfjarða (pdf-skjal) og kynna sér í stuttu máli hvað kom fram á ráðstefnunni.

 

bb.is

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31