Tenglar

28. ágúst 2009 |

Stefnumót á Ströndum næsta hálfa mánuðinn

1 af 3
Atvinnu- og menningarsýningin Stefnumót á Ströndum verður opnuð við hátíðlega athöfn í Félagsheimilinu á Hólmavík á morgun, laugardag. Hún stendur síðan næsta hálfa mánuðinn og liðlega það eða til 15. september. Yfir 60 sýnendur, fullorðnir og börn, allt frá Hrútafirði, norður í Ófeigsfjörð og yfir í Djúp, taka þátt í sýningunni, sem er bæði fjölbreytt og fróðleg. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands er verndari sýningarinnar.

 

Á Ströndum er öflugt athafna- og menningarlíf sem landsmönnum öllum er boðið velkomið að taka þátt í. Er það von Strandamanna að farsælt samstarf ólíkra aðila efli byggð og verði kveikja að nýjum hugmyndum til framfara.

 

Markmið sýningarinnar er tvíþætt:

- Að efla ímynd Stranda út á við sem aðlaðandi búsetu-, ráðstefnu- og ferðamannasvæðis.
- Að efla tengsl ólíkra aðila á Ströndum með því að leiða saman hefðbundna og óhefðbundna starfsemi.

 

Varða til framtíðar

Á opnunardaginn hlaða fjórir ættliðir Strandamanna, þeir Sverrir Guðbrandsson eldri, Guðbrandur Sverrisson, Sverrir Guðbrandsson yngri og Jakob Ingi Sverrisson, vörðu til framtíðar við Félagsheimilið á Hólmavík. Þátttakendur og gestir Stefnumóts á Ströndum eru hvattir til að koma með stein í vörðuna úr sinni heimabyggð.

 

Vinahlaup um Arnkötludal

Sama dag hlaupa Strandamenn og íbúar Reykhólasveitar um nýjan veg um Arnkötludal, sem opnaður verður síðar í haust, og skiptast á vinakveðjum. Kveðjurnar eru tákn um mikilvægi samstarfs milli héraða og landshluta. Opnun vegarins eflir tengsl milli þessara svæða og skapar margvísleg ný tækifæri.

 

Opnunardagskrá Stefnumóts á Ströndum hefst kl. 13 á morgun og stendur fram eftir deginum. Dagskrána má nálgast hér.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31