Tenglar

15. maí 2009 |

Stefnumót um söfn og sögutengda ferðaþjónustu

Aðalsteinn Valdimarsson á Bátasafni Breiðafjarðar á Reykhólum.
Aðalsteinn Valdimarsson á Bátasafni Breiðafjarðar á Reykhólum.

Starfsfólki og stjórnendum safna, setra og sögusýninga hefur verið boðið á stefnumót í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í kvöld og á morgun. Allt áhugafólk um safnastarf og sögutengda ferðaþjónustu er einnig velkomið. Hugmyndin er að þarna hittist fólk sem vinnur að þróun og uppbyggingu safna, setra og sýninga á Vestfjörðum, kynnist hvert öðru og beri saman bækur sínar, skiptist á reynslu og skoðunum, segi frá verkefnum sem verið er að vinna að og ræði um sameiginleg hagsmunamál og frekari möguleika til eflingar þessarar starfsemi.

 

Dagskrá

 

Föstudagskvöldið 15. maí kl. 20

 

Gestir kynna starfsemi sinna sýninga, safna og setra. Einnig verður kynntur vestfirskur safnabæklingur sem Markaðsstofa Vestfjarða hyggst gefa út í vor.

 

Laugardagur 16. maí kl. 9-12

 

Umræður, samræður og spjall. Góðir gestir flytja fyrirlestra um söfn, setur og sýningar, menningartengda ferðaþjónustu, samstarf, atvinnuuppbyggingu, markaðssetningu og fleira.

 

Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, framkvæmdastjóri Selasetursins á Hvammstanga, segir dæmisögu um vel heppnaða uppbyggingu seturs og ræðir um möguleika og tækifæri við slíka þróunarvinnu, m.a. við atvinnusköpun.

 

Guðbrandur Benediktsson sagn- og safnfræðingur flytur erindi sem kallast Ólíkir pólar? Minjavernd og menningarferðaþjónusta. Guðbrandur hefur rannsakað þetta efni töluvert, segir frá ólíkum skoðunum og togstreitu milli ólíkrar hugmyndafræði og veltir nú fyrir sér hvort ekki sé gáfulegra að byggja brýr en að dýpka skotgrafirnar.

 

Gísli Sverrir Árnason hjá fyrirtækinu R3 mun segja frá verkefni sem hann stýrir sem heitir Safnaklasi Suðurlands og byggir á samstarfi safna, setra og sýninga á Suðurlandi.

 

Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða dregur saman þræði, ræðir um möguleika svæðisins í þróun og uppbyggingu safna, setra og sýninga og hvernig hún getur haft sem jákvæðust áhrif á byggð, atvinnulíf og mannlíf.

 

Allt áhugafólk um safnastarf, sýningahald og sögutengda ferðaþjónustu er hvatt til að mæta á stefnumótið sem er öllum opið. Það eru Valdimar J. Halldórsson, forstöðumaður safnsins á Hrafneyri, og Guðfinna Hreiðarsdóttir, formaður stjórnar Byggðasafns Vestfjarða, sem hafa undirbúið stefnumótið ásamt Jóni Jónssyni, menningarfulltrúa Vestfjarða.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31