Tenglar

19. janúar 2015 |

Stefnumótun: Opinn fundur á Hólmavík

Nú stendur yfir vinna að stefnumótun fyrir Sóknaráætlun Vestfjarða árin 2015-2019, í samræmi við fyrirhugaðan samning milli ríkis og sveitarfélaganna um þetta efni. Þegar er búið að halda tvo fundi, á Patreksfirði og Ísafirði, og framundan er fundur á Hólmavík sem fresta þurfti í síðustu viku. Fundurinn á Hólmavík verður haldinn núna á miðvikudag, 21. janúar kl. 15, í Félagsheimilinu á Hólmavík.

 

Um er að ræða opinn fund sem öllum er heimilt að mæta á og taka þátt í vinnunni. Uppkast að Sóknaráætluninni verður svo birt á vefnum í framhaldinu og þá verður einnig hægt að gera athugasemdir og koma með tillögur. Fundurinn stendur að hámarki í þrjá tíma og kaffi verður á boðstólum í hléi.

 

Í nýrri Sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019 á að fjalla um nýsköpun og atvinnuþróun, menningarmál, uppbyggingu mannauðs og lýðfræðilega þróun á svæðinu. Á fundunum er fjallað um stöðu Vestfjarða í þessum málaflokkum í stuttum kynningum og síðan unnið í hópum við hringborð. Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur umsjón með vinnunni og nýtur aðstoðar Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða.

 

Allir sem áhuga hafa á byggðamálum og framtíð Vestfjarða eru hvattir til að mæta og taka þátt í vinnunni, segir í tilkynningu frá Fjórðungssambandinu.

 

Athugasemdir

María Maack, rijudagur 20 janar kl: 08:59

Æ æ og INga Birna ekki á svæðinu, heldur ekki Ágúst og ekki heldur María Maack sem þó hafði brennandi áhuga á að mæta..

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31