Stefnumótun fyrir vestfirska ferðaþjónustu
Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa fengið styrk frá Ferðamálastofu og Uppbyggingarsjóði Vestfjarða til að vinna að stefnumótun fyrir vestfirska ferðaþjónustu 2016-2020. Mikilvægt er að sem flestir hagsmunaaðilar taki þátt í mótun stefnunnar, bæði ferðaþjónar, sveitarfélög og opinberar stofnanir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá verkefnisstjórn Ferðamálasamtaka Vestfjarða um stefnumótun 2016-2020. Þar segir ennfremur meðal annars:
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða (Atvest) mun halda utan um vinnu við mótun stefnunnar. Nú þegar hefur Atvest unnið stöðugreiningu fyrir ferðaþjónustu á Vestfjörðum, sem er aðgengileg hér á vef Ferðamálasamtaka Vestfjarða.
Ferðamálasamtökin leggja metnað sinn í að unnin sé stefna sem samstaða er um. Lögð er sérstök áhersla á eftirfylgni stefnunnar, þar sem mörg umfangsmikil verkefni liggja fyrir á næstu árum vegna mikils vaxtar í ferðaþjónustu á Íslandi og því mikilvægt fyrir ferðaþjónustu á Vestfjörðum að sem flestir komi að borðinu.
Stefnt er að fundum eins og hér segir:
- 1. mars kl. 17 í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
- 2. mars kl. 12 á Café Riis á Hólmavík
- 3. mars kl. 8 (að morgni) í félagsheimilinu á Patreksfirði