Tenglar

16. janúar 2015 |

Stikum af stað - ráðstefna um ferðagönguleiðir

Ljósm. Ferðamálastofa.
Ljósm. Ferðamálastofa.

Ferðamálastofa, Ferðafélag Íslands og Útivist standa fyrir ráðstefnu um ferðagönguleiðir fimmtudaginn 5. mars. Ráðstefnan verður haldin í sal Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6, og stendur kl. 13-17. Þar verður fjallað um framtíðarskipulag og þróun lengri gönguleiða og er endanleg dagskrá í vinnslu. Meðal framsögumanna verður Lukas Stadtherr frá Swiss Mobility, en sú stofnun hefur það hlutverk að þróa landsnet ferðaleiða í Sviss. Verkefnið hófst 1993 og nú er í Sviss vel þróað net göngu-, hjóla-, línuskauta- og kanóleiða.

 

Gísli Rafn Guðmundsson mun kynna verkefnið „Þjóðstígar á Íslandi“. Í því riti, sem kom út á liðnu hausti, eru lögð drög að þróun gönguleiðakerfis fyrir Ísland. Því næst verður á dagskrá fjöldi styttri fyrirlestra um uppbyggingu og framtíðarsýn fyrir langar gönguleiðir og tengda áfangastaði.

 

Ekkert þátttökugjald er, en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31