Tenglar

19. mars 2011 |

Stjórn FV fjallar um orkuöryggi á Vestfjörðum

Á fundi stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga 11. mars var gerð samþykkt varðandi nýútkomna skýrslu starfshóps iðnaðarráðherra sem nefnist Orkuöryggi á Vestfjörðum - áhrif á samkeppnisstöðu og atvinnuþróun. Skýrsla þessi var kynnt af hálfu iðnaðarráðherra, orkumálastjóra og fulltrúa Landsnets á opnum fundum á Patreksfirði og Ísafirði 7. mars.

 

Samþykkt stjórnar Fjórðungssambandsins er þannig:

 

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga lýsir ánægju með að skýrsla starfshóps iðnaðarráðherra sé nú loks komin fram og þær tillögur sem þar eru fram settar.

 

Stjórn leggur áherslu á, að nú er viðurkenndur sá vandi sem atvinnulíf og samfélög á Vestfjörðum hafa staðið frammi fyrir um áratuga skeið og þannig skaðað ímynd og samkeppnisstöðu svæðisins. Tekur stjórn undir tillögu starfshópsins að gefinn verði afsláttur á kostnaði við flutning raforku á meðan þetta ástand varir.

 

Stjórn leggur áherslu að hraðað verði gerð tímasettra áætlana er varða uppbyggingu varaafls, rannsóknir er varða nýja virkjakosti og hringtengingu flutningskerfis fyrir raforku og gagnaflutninga. Auk þess leggur stjórn áherslu á gerð áætlunar á þrífösun rafmagns í dreifbýli.

 

Formaður stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, veitir nánari upplýsingar í síma 848 4256.

 

Skýrslan: Orkuöryggi á Vestfjörðum - áhrif á samkeppnisstöðu og atvinnuþróun (pdf)

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31