Tenglar

18. janúar 2016 |

Stjórnsýsluhúsið: Allt í hers höndum

Allt í hers höndum ...
Allt í hers höndum ...
1 af 5

Miklar framkvæmdir standa yfir í Stjórnsýsluhúsinu við Maríutröð á Reykhólum þessar vikurnar; segja má að þar sé allt meira og minna undirlagt. Afgreiðsla Landsbankans sem er þar að öllu venjulegu á miðvikudögum hefur verið lokuð þennan mánuð en verður opnuð á nýjan leik á mánudaginn eftir viku. Verið er að útbúa tvær skrifstofur úr rýminu hægra megin við innganginn og lagfæra aðgengi fatlaðs fólks inni í húsinu. Í haust var aðgengið inn í húsið lagfært. Núna eru hurðagöt inn að afgreiðslunni víkkuð og jafnframt verða mjög rúmar dyr inn í báðar nýju skrifstofurnar. Tækifærið er notað til að gera við veggi og mála öll húsakynnin.

 

Framvegis verður skrifstofustjóri Reykhólahrepps í annarri nýju skrifstofunni og jafnframt afgreiðsla Landsbankans einu sinni í viku, en Ágúst Már Gröndal gegnir báðum störfunum. Í hinni skrifstofunni verða til skiptis María Játvarðardóttir félagsmálastjóri (á mánudögum) og María Maack fulltrúi Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða (þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga).

 

Á myndunum eru að störfum Hjalti Hafþórsson, umsjónarmaður fasteigna Reykhólahrepps, Jón Þór Kjartansson, starfsmaður Áhaldahússins, og Egill Sigurgeirsson pípulagningameistari.

 

Athugasemdir

Einar Örn Thorlacius fyrrv. sveitarstjóri Reykhólahrepps, mnudagur 18 janar kl: 13:30

Gaman að sjá þetta. Ég mun sennilega ekki rata um húsið næst þegar ég kem í heimsókn.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31