Tenglar

16. apríl 2013 | vefstjori@reykholar.is

Stjórnvöld verða að standa með landsbyggðinni

Í björtu veðri en hvössu á Reykhólum: Björn Samúelsson, Jón Bjarnason alþm. og Barbara Ósk Guðbjartsdóttir.
Í björtu veðri en hvössu á Reykhólum: Björn Samúelsson, Jón Bjarnason alþm. og Barbara Ósk Guðbjartsdóttir.

Jón Bjarnason alþingismaður og fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra heimsótti í dag vinnustaði á Reykhólum og nokkra bæi í héraðinu. Þetta var framboðsferð, en Jón skipar efsta sæti J-listans (Regnbogans, framboðs um fullveldi Íslands) í NV-kjördæmi. Með honum í för var Barbara Ósk Guðbjartsdóttir, tónlistarmaður og bóndi í Miðhúsum í Kollafirði á Ströndum, sem skipar 3. sæti J-listans, en leiðsögumaður þeirra í heimsókninni var Björn Samúelsson á Reykhólum, sem skipar 9. sæti listans.

 

„Þetta er gjöfult hérað, hér eru miklar náttúruauðlindir bæði til lands og sjávar. Fyrrum var Breiðafjörðurinn matarkista Íslendinga og hér eru tækifærin enn í dag,“ sagði Jón.

 

„Það er ánægjulegt að sjá dugnað fólksins hér og finna væntingarnar til þess að geta gert enn meira og enn betur. Stjórnvöld verða að standa með landsbyggðinni: Það er hérna sem atvinnutækifærin eru, það er af landsbyggðinni sem útflutningstekjurnar koma - frá sjávarútvegi og landbúnaði, matvælavinnslu og ferðaþjónustu,“ sagði Jón Bjarnason.

 

Jón Bjarnason, helstu æviatriði á vef Alþingis

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31