27. desember 2012 |
Stöðugar sendingar frá vefmyndavélum við vegi
Minnt skal á vefmyndavélar Vegagerðarinnar, sem eru á tólf stöðum á Vestfjarðakjálkanum, þar á meðal á Hjallahálsi og Klettshálsi og við veginn um Þröskulda. Frá myndavél á hverjum stað birtast myndir frá þremur sjónarhornum, ein á fimm mínútna fresti, ásamt því sem fram koma upplýsingar um vindátt, vindhraða og hitastig.
Vefmyndirnar má sjá hér og líka í tengladálkinum vinstra megin á síðunni. Athugið, að röðin á tenglunum þar er ekki föst heldur breytist hún af handahófi í hvert skipti sem vefurinn er endurræstur eða farið inn á hann á ný.