Tenglar

1. mars 2022 | Sveinn Ragnarsson

Stöður stefnuvotta auglýstar

Sýslumaðurinn á Vestfjörðum auglýsir stöður aðalstefnuvotts og varastefnuvotts í Reykhólahreppi lausar til umsóknar.

 

Verkefni stefnuvotta er að birta stefnur, kvaðningar og aðrar tilkynningar í sveitarfélaginu, samanber 81. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. 

Þar segir að til að annast þessar birtingar skipi sýslumaður a.m.k. einn mann í hverju sveitarfélagi í umdæmi sínu og annan til vara til að gegna þeim störfum í forföllum.
Greitt er fyrir starfann skv. gjaldskrá fyrir stefnuvotta sem ráðherra gefur út og er nú nr. 892/2020. 
Ekki fylgja starfinu önnur laun eða tekjur en þau sem þar eru ákvörðuð.

 

Leitað er að heiðarlegum og áreiðanlegum einstaklingi með góða framkomu, sem æskilegt er að hafi ökutæki til umráða. Stefnuvottur þarf að hafa
náð 25 ára aldri og má ekki hafa hlotið refsidóm fram yfir fjögurra mánaða óskilorðsbundna fangelsisrefsingu. Stefnuvottur skal undirrita drengskaparheit um að hann
muni rækja starfann af trúmennsku og samviskusemi.

 

Umsóknarfrestur er til 15. mars nk. og berist umsóknir til Sýslumannsins á Vestfjörðum í netfangið jg@syslumenn.is. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ráðið hefur verið í stöðuna/stöðurnar.

 

Nánari upplýsingar veitir sýslumaður, Jónas B. Guðmundsson, í síma 458 2400 eða með svari við erindum sem berast í netfangið jg@syslumenn.is

 

Athugasemdir

Simon Pétur, mivikudagur 02 mars kl: 00:04

Ætli það sé ekki vandræðalegt fyrir stefnuvott að birta nánu skyldmenni stefnu? ????

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31