Tenglar

24. október 2009 |

Stóraukinn ójöfnuður í námskostnaði vegna búsetu

Séð til Búðardals í fjarska.
Séð til Búðardals í fjarska.
Sveitarstjórn Dalabyggðar mótmælir þeirri forgangsröðun sem kemur fram í fjárlagafrumvarpi ársins 2010 og snýr að jöfnun námskostnaðar vegna búsetu. Um er að ræða um 40% lækkun á milli ára sé tekið tillit til verðlagsbreytinga. Þetta bitnar hart á þeim íbúum landsins sem ekki eiga þess kost að senda börnin sín í framhaldsskóla í heimabyggð.

 

Sveitarstjórn Dalabyggðar skorar á þingmenn að breyta frumvarpinu í meðförum þingsins. Það er ljóst að skera þarf niður til að mæta halla á ríkisbúskapnum en það má ekki verða til þess að auka ójöfnuð. Á Íslandi á að vera jafn réttur til náms óháð efnahag eða búsetu.

 

Ofanritað var samþykkt í einu hljóði á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar í vikunni.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31