16. maí 2019 | Sveinn Ragnarsson
Störf á Báta- og hlunnindasýningunni
Báta og hlunnindasýningin á Reykhólum leitar eftir 2-3 ungmennum (14-70 ára) í hlutastarf 1. Júní -10. ágúst.
Starfið felst í að fræða um muni sýningarinnar og náttúruauðlindir svæðisins, veita ferðamönnum upplýsingar á íslensku og ensku, og léttum heimilisverkum.
Óskað er eftir fólki sem hefur ríka þjónustulund, er snyrtilegt í umgengni og ófeimið við að tjá sig við ókunnuga.
Umsækjandi vinsamlega sendi svör á tölvufangið: kriamari@gmail.com fyrir 23. maí, með stuttu svari við spurningunni: Hvers vegna vil ég starfa við menningarferðaþjónustu?