Tenglar

6. júní 2019 | Sveinn Ragnarsson

Störf í Reykhólaskóla

Reykhólaskóli óskar eftir stuðningsfulltrúa í 75-90% starf frá kl. 8:15 alla daga næsta skólaár

Mismunandi er hvenær vinnu lýkur eftir vikudögum.

Starfið felur í sér stuðning og gæslu við nemendur í skóla og frístundastarfi ásamt öðrum tilfallandi störfum í samráði við skólastjóra.

 

Reykhólaskóli óskar eftir leikskólakennara/starfsmanni í leikskólanum í 75 - 100% starf

Starfið felur í sér að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og í foreldrasamstarfi undir stjórn aðstoðarleikskólastjóra.

 

Jákvæðni, lipurð og góð færni í mannlegum samskiptum eru nauðsynleg.

Reynsla af vinnu með börnum æskileg.

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um störfin.

 

Laun eru skv. kjarasamningi VerkVest.

Umsóknarfrestur er til 15. júlí 2019.

Viðkomandi þurfa að geta hafið störf í ágúst 2019.

 

Umsóknum, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal senda í tölvupósti á skolastjori@reykholar.is

 

Gerð er krafa um hreint sakavottorð.

Öllum umsóknum verður svarað.

Upplýsingar um skólastarfið eru á heimasíðu skólans:http://reykholaskoli.is

Allar nánari upplýsingar veitir Anna Björg skólastjóri í síma 4347731

 

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31