4. maí 2017 | Sveinn Ragnarsson
Störf við dvalar- og hjúkrunarheimilið Barmahlíð
Starfsfólk vantar í umönnun á hjúkrunar og-dvalarheimilið Barmahlíð á Reykhólum frá 15. ágúst, bæði í fullt starf og hlutastörf. Í Barmahlíð er unnið metnaðarfullt starf þar sem heimilismenn og starfsfólk vinna saman að því að skapa öruggt og heimilislegt umhverfi. Einnig er óskað eftir starfsmanni í 60% starf við ræstingar, unnið er frá 9-14.
Nánari upplýsingar veitir Helga Garðarsdóttir hjúkrunarforstjóri, netfang: barmahlid@reykholar.is eða hringið í síma 434 7817
Húsnæði er í boði á staðnum.