20. janúar 2014 | vefstjori@reykholar.is
Stórkostlegar vetrar- og ísingarmyndir af hálendinu
Vinnuflokkur Orkubús Vestfjarða fór til viðgerða á Súðavíkurlínu um leið og færi gafst eftir ofstopann í veðrinu um daginn. Hérna á þessu myndskeiði á Facebook má sjá þær aðstæður sem bíða línumanna á vestfirskum fjöllum yfir vetrartímann og jafnframt hina miklu fegurð á fjalllendi Vestfjarða á stilltum vetrardögum.
Líklega hafa fæstir sem segja ljótt út af rafmagnstruflunum séð þá ótrúlegu ísingu sem hleðst á raflínur og raflínuvirki. Hérna mætti e.t.v. hugsa sér hvernig það er fyrir Orkubúsmenn að fást við slíkt í snarvitlausu veðri.
Myndskeiðið er tæplega fimm mínútna langt.