Tenglar

8. mars 2011 |

Stórmerkilegar fornleifaskýrslur úr Reykhólahreppi

Steinunn Hjálmarsdóttir við þvott í Grettislauginni gömlu.
Steinunn Hjálmarsdóttir við þvott í Grettislauginni gömlu.

Fyrir skömmu var sett hér á vefinn skýrsla um byggða- og húsakönnun í Flatey á Breiðafirði. Núna hafa sjö skýrslur bæst við, en þar er greint frá ýmsum fornleifarannsóknum í Austur-Barðastrandarsýslu og Dalasýslu. Sumar varða staði í Dalasýslu en aðrar í Reykhólahreppi, sem allt frá 1987 hefur spannað alla hina gömlu Austur-Barðastrandarsýslu. Þar á meðal er Flateyjarhreppurinn gamli. Innan hans - og nú Reykhólahrepps - er mestur hluti Breiðafjarðareyja.

 

Skýrslurnar má nálgast (á pdf-formi) í liðnum Byggð og saga - skýrslur hér í valmyndinni vinstra megin.

 

Fornleifafélag Barðstrendinga og Dalamanna hefur undanfarin ár staðið fyrir fjölbreyttum rannsóknum í Austur-Barðastrandarsýslu og Dalasýslu. Mesta áherslan hefur verið lögð á að skrá og mæla upp menningarminjar í Breiðafjarðareyjum og hafa Skáleyjar, Hergilsey, Akureyjar, Oddbjarnarsker og Öxney verið heimsóttar. Skýrslur eru komnar út um flest verkefnin og eru þær birtar hér á vefnum. Von er á fleirum með vorinu auk fornleifa- og örnefnakorta. Það er von þeirra sem að félaginu standa, að staðkunnugir bendi forsvarsmönnum á það sem betur má fara, bæði í skýrslum og á tilvonandi kortum. Þrátt fyrir góðan vilja slæðast villur alltaf með og heimamenn eru snöggir að sjá það sem aðkomufólki yfirsést.

 

Fornleifafélag Barðstrendinga og Dalamanna var stofnað haustið 2007. Markmið þess voru og eru að beita sér fyrir fornleifarannsóknum og nýsköpun í menningartengdri ferðaþjónustu.

 

Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því að: 

  • Efla rannsóknir á svæðinu með þverfaglegri samvinnu fræðimanna, stofnana og félaga með áherslu á hagnýta notkun og framsetningu gagna.
  • Auka þekkingu vísindamanna og almennings á sögu svæðisins.
  • Stuðla að fornleifarannsóknum og söfnun upplýsinga um minjar og menningarsögu auk uppmælinga á svæðinu.
  • Gefa niðurstöður rannsókna út í fræði- og fræðsluritum og halda sýningar og kynningar í heimabyggð.
  • Hafa aðgengilegt efni, fréttir og upplýsingar á netinu.

Formaður félagsins er Björn Samúelsson á Reykhólum, gjaldkeri er Guðrún Alda Gísladóttir fornleifafræðingur í Reykjavík (frá Gröf í Þorskafirði) og ritari er sr. Óskar Ingi Ingason í Búðardal. Félagsmenn eru núna rúmlega þrjátíu.

 

Aðalfundir sem eru öllum opnir hafa verið haldnir í Búðardal og í Króksfjarðarnesi. Þá hefur á aðalfundum verið fenginn fyrirlesari til að fjalla um efni sem tengist svæðinu. Oftast er þó úr nógu að moða að segja frá rannsóknum félagsins sjálfs. Næsti aðalfundur verður auglýstur fljótlega.

 

Meðfylgjandi mynd er úr skýrslunni um Grettislaug á Reykhólum. Þar er Steinunn Hjálmarsdóttir húsfreyja á Reykhólum og ættmóðir mjög margra við þvott í Grettislaug fyrir rúmum sextíu árum.

 

Athugasemdir

Hlynur Þór Magnússon, mivikudagur 09 mars kl: 06:11

Vegna ofurlítillar þekkingar á þessum efnum frá fyrri tíð leyfi ég mér að segja: Mér finnst starf þessa félags við Breiðafjörðinn á mjög stuttum tíma bæði stórkostlegt og ótrúlegt. Ekkert minna!

Hlynur Þór Magnússon, mivikudagur 09 mars kl: 08:48

Hvaða strýta er þetta efst á myndinni? Hver veit það?

Herdís, mivikudagur 09 mars kl: 10:03

Er þetta ekki bara tjald

Bára M Pálsdóttir, mivikudagur 09 mars kl: 12:43

Mikið er gaman að sjá þessa mynd af Steinunni. Ég var í sveit hjá þeim hjónum Steinunni og Tómasi á Reykhólum og á yndislegar minningar frá þeim tíma. Þau voru bæði afskaplega góðar manneskjur og gott að vera hjá þeim.Man sérstaklega eftir því þegar að hún var að baka rúgbrauð í hvernum. Hjálpaði stundum Dísu heitinni á Mávavatni með strákana. Fór á hestbak hjá Lilju á Grund og svo fl og fl. Átti mjög góð ár þarna í sveitinni.

Björk Stefánsdóttir, mivikudagur 09 mars kl: 14:26

frábært alveg.......Ég var að eignast svona mynd af langömmu, bara æðisleg mynd

Kristín I Tómasdóttir, sunnudagur 13 mars kl: 21:17

En gaman að þessu! Æðisleg mynd af langömmu:-)

Trausti Hraunfjörð, fstudagur 24 febrar kl: 21:15

Nú er ég heldur betur hissa. Að sjá Steinunni á þessari mynd sem víst er yfir 60 ára gömul (myndin), get ég ekki annað sagt en að hún líkist sjálfri sér mjög mikið, þegar hún var orðin rúmum 20 árum eldri. Hún var algert gull af manneskju, og á ég bara góðar minningar af henni og Tómasi (á tunnunni). Þegar ég sem barn gekk heiman frá afa og ömmu í Ási með mjólkur fötuna til að fá hana fyllta af nýrri mjólk, þá fékk ég alltaf koss á kinn og klapp á kollinn af Steinunni í farar-nesti.

Gott fólk á allan hátt.

Kristín I. Tómasdóttir, fstudagur 19 oktber kl: 14:29

Myndin er tekin árið 1949 af Úlfi Ragnarssyni, lækni, eða fólki á hans vegum. ÚR var þá læknir á Reykhólum. Strýtan á myndinni er af tjaldi

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Oktber 2024 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31