Tenglar

16. október 2011 |

Stórt héraðamót í sundi haldið á Reykhólum

Grettislaug á Reykhólum.
Grettislaug á Reykhólum.

Sundmót UDN*) og Strandamanna verður haldið í Grettislaug á Reykhólum á þriðjudagskvöld og hefst kl. 17. Keppt verður í mörgum aldursflokkum og mörgum greinum. Allir eru velkomnir að fylgjast með keppninni. Skráning er hjá Herdísi í síma 690 3825 og netpósti. Umf. Afturelding verður með pylsur og Svala til sölu. Keppt verður í þessum aldursflokkum og greinum:

 

8 ára og yngri

25 m bringusund, 25 m skriðsund

 

9-10 ára

25 m bringusund, 25 m baksund, 25 m skriðsund

 

11-12 ára

50 m bringusund, 25 m baksund, 50 m skriðsund, 25 m flugsund

 

13-14 ára

50 m bringusund, 50 m baksund, 100 m bringusund, 50 m skriðsund, 25 m flugsund

 

15-16 ára

50 m bringusund, 50 m baksund, 200 m bringusund, 50 m skriðsund, 25 m flugsund

 

17 ára og eldri

50 m bringusund, 50 m baksund, 200 m bringusund, 50 m skriðsund, 100 m fjórsund (flugsund, baksund, bringusund, skriðsund), 4 x 50 m boðsund

 

*) Skammstöfunin UDN stendur fyrir Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga, en meðal félaganna í sambandinu er Ungmennafélagið Afturelding í Reykhólahreppi.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31