13. mars 2014 | vefstjori@reykholar.is
Strandagangan tuttugasta árið í röð
Tuttugasta Strandagangan verður í Selárdal upp af Steingrímsfirði á laugardag. Hægt er að velja um nokkrar vegalengdir í mörgum aldursflokkum og jafnframt að taka þátt í sveitakeppni. Að göngu lokinni er hægt að fara í sturtu og heita potta í íþróttamiðstöðinni á Hólmavík og síðan verður kaffihlaðborð og verðlaunaafhending í Félagsheimilinu á Hólmavík. Á sunnudag verður svo skíðaleikjahátíð í Selárdal.
Strandagangan er hluti af Íslandsgöngunni, sem er mótaröð fyrir almenning haldin á sex stöðum víðs vegar um landið.
Allar nánari upplýsingar á vef Strandagöngunnar.