9. október 2010 |
Strandamönnum boðið á sundmót á Reykhólum
Sundmót Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) verður haldið í Grettislaug á Reykhólum á miðvikudag, 13. október, og hefst kl. 17. Strandamönnum er boðið að koma og keppa við liðsfólk UDN. Ungmennafélagið Afturelding í Reykhólahreppi selur pylsur og Svala. Skráning hjá Herdísi í síma 690 3825.