Tenglar

29. desember 2013 | vefstjori@reykholar.is

Stungu af án þess að borga fyrir gistinguna

Björgunarsveitarmenn að störfum. Af Facebooksíðu Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Björgunarsveitarmenn að störfum. Af Facebooksíðu Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Menn úr Björgunarsveitinni Heimamönnum í Reykhólahreppi og Björgunarsveitinni Dagrenningu á Hólmavík fóru fyrir nokkru (17. des.) upp á Þröskulda til aðstoðar fólki sem sat þar fast í þremur bílum. Fólkið var flutt á gististað hjá Ferðaþjónustunni Þurranesi í Saurbæ en bílarnir skildir eftir. Þegar kom fram á morgun daginn eftir kom í ljós að fólkið var farið frá Þurranesi og hafði fengið far til að sækja bílana. Í einum bílnum var par sem kom svo aftur og gerði upp gistinguna en fólkið í hinum bílunum lét aldrei sjá sig né heldur heyra frá sér.

 

„Maður bara skilur þetta ekki,“ segir segir Brynjólfur Víðir Smárason, formaður Björgunarsveitarinnar Heimamanna. „Þarna eru menn úr tveimur björgunarsveitum búnir í sjálfboðavinnu að bjarga fólki í vandræðum, og svo er ekki einu sinni hægt að borga fyrir gistinguna sem búið var að kaupa, heldur stungið af. Þetta er ekki bara leiðinlegt, þetta er ljótt,“ segir Brynjólfur.

 

Athugasemdir

Carl Jóhann Lilliendahl, sunnudagur 29 desember kl: 09:14

Gott fólk.

Ljótt að heyra þetta. - Voru þetta Íslendingar sem létu sig hverfa sona?


Kær kveðja og gleðileg jól og nýtt ár,

- Carl Jóhann Lilliendahl.

Eyvindur, sunnudagur 29 desember kl: 11:28

Þetta voru allt Íslendingar, eldri maður í fólksbíl fremstur, hann hafði tengingu við svæðið, par í jeppa í miðbílnum og maður 30-40 ára á leið til útlanda í aftasta fólksbílnum. Þau voru öll mjög þakklát okkur sem fóru í útkallið en svona skilur maður ekki við. Okkar verkefni er að bjarga og koma fólki í skjól, Þurranes er næsta gistheimili og eru ábúendur þar ræst á hvaða tíma sólarhrings til að taka á móti fólki og gera þau það vel.

gunnar k guðmundss, sunnudagur 29 desember kl: 17:08

það á að láta bilnúmer og nafn af þessu folkji á siðuna svo að allir sjá það.

Ann lee, sunnudagur 29 desember kl: 19:16

What has happened to the folks in Iceland. Did they expect the people that saved them, to pay for the night in a hotel. Yes things have changed. I hope they will come to there senses. Iceland has the most friendly and honest people I have known. Ann Lee.

Gunnar K. Guðmundss, mnudagur 30 desember kl: 00:08

Persónuvernd myndi ekki leyfa slíka nafn- og númerabirtingu. Það þarf að vernda svona drullusokka, því miður. En það er bara staðreynd. Bjössi.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31