Tenglar

8. apríl 2011 |

Stutt eftir af umsóknarfresti hjá Menningarráði

Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarverkefna á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Fjórðungssamband Vestfirðinga. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum.

 

Hægt er að sækja um stuðning við hverskyns menningarverkefni, svo framarlega að umsókn eða verkefni stangist ekki á við úthlutunarreglur sem samþykktar eru við hverja úthlutun. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við fyrri úthlutun ársins 2011 verði horft sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

 

          # Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á Vestfjörðum.

          # Verkefni sem stuðla að nýsköpun og fjölbreytni í menningartengdum verkefnum.

          # Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar.

          # Menningarstarfsemi sem styður við ferðaþjónustu.

          # Verkefni sem stuðla að þátttöku barna og unglinga í listsköpun og menningarstarfi.

 

Umsóknarfresti lýkur fimmtudaginn 14. apríl. Úthlutun fer fram í maí. Fyrirvari er gerður um undirritun nýs menningarsamnings milli ríkisvaldins og Fjórðungssambands Vestfirðinga fyrir þann tíma.

 

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Vestfjarða á viðeigandi eyðublöðum eða í gegnum umsóknarform á vef ráðsins undir tenglinum Styrkir. Umsækjendur eru eindregið hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur Menningarráðs á sama stað.

 

Allar nánari upplýsingar veitir Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891 7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31