25. nóvember 2015 |
Styrkir OV til samfélagsverkefna á Vestfjörðum
Stjórn Orkubús Vestfjarða hefur fjórða árið í röð ákveðið að veita styrki til samfélagsverkefna á Vestfjörðum. Að þessu sinni eru til ráðstöfunar þrjár milljónir króna. Umsóknir um styrkina þurfa að berast fyrir 12. desember. Stefnt er að því að þeim verði úthlutað í byrjun janúar.
Umsókn um styrk má senda í pósti til Orkubús Vestfjarða, Stakkanesi 1, 400 Ísafirði, merkt Styrkur, eða í tölvupósti til orkubússtjóra á netfangið kh@ov.is.
Hér má sjá lista yfir styrkina sem fyrirtækið hefur veitt undanfarin ár.