16. nóvember 2012 |
Styrkir Orkubús Vestfjarða til samfélagsverkefna
Stjórn Orkubús Vestfjarða hefur ákveðið að veita styrki til samfélagsverkefna á Vestfjörðum. Umsóknir þurfa að berast Orkubúi Vestfjarða fyrir 1. desember og er stefnt að því að þeim verði úthlutað í desember.
Umsókn um styrk má senda í pósti til Orkubús Vestfjarða, Stakkanesi 1, 400 Ísafirði, merkt „Styrkur“, eða með tölvupósti til orkubússtjóra á netfangið kh@ov.is.