11. nóvember 2014 | vefstjori@reykholar.is
Styrkir Orkubús Vestfjarða til samfélagsverkefna 2014
Stjórn Orkubús Vestfjarða hefur í þriðja sinn ákveðið að veita styrki til samfélagsverkefna á Vestfjörðum. Að þessu sinni eru til ráðstöfunar 3.500.000 krónur. Umsóknir um styrkina þurfa að berast Orkubúi Vestfjarða fyrir 25. nóvember. Stefnt er að því að þeim verði úthlutað í desember.
Umsókn um styrk má senda í pósti til Orkubús Vestfjarða, Stakkanesi 1, 400 Ísafirði, merkt Styrkur, eða með tölvupósti til orkubússtjóra á netfangið kh@ov.is.
Sjá fréttir um samfélagsstyrki frá Orkubúi Vestfjarða sem verkefni í Reykhólahreppi hafa hlotið:
► 21.12.2013 Orkubúið styrkir Heimamenn og Aftureldingu
► 05.02.2013 Styrkur til sjónvarpssendinga úr Reykhólakirkju (einnig fékk Hólafjör styrk)