Tenglar

31. janúar 2017 | Umsjón

Styrkir í boði fyrir frumkvöðla í hópi kvenna

Vinnumálastofnun/velferðarráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna árið 2017 lausa til umsóknar. Verkefnið eða hugmyndin þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði: 

  • Verkefnið sé í meirihlutaeigu konu/kvenna (a.m.k. 51%) og stjórnað af konu.
  • Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
  • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
  • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.

Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, til markaðssetningar og gerðar markaðsáætlunar, vöruþróunar, hönnunar og efniskostnaðar. Enn fremur geta konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni, eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma henni í framkvæmd.

 

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni er kr. 35.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 4.000.000. Ekki eru veittir lægri styrkir en kr. 600.000. Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar.

 

Meira hér á vef Fjórðungssambands Vestfirðinga.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31