Tenglar

22. janúar 2010 |

Styrkir til atvinnumála kvenna

Styrkir til atvinnumála kvenna eru nú lausir til umsóknar, en það er félags- og tryggingamálaráðherra sem veitir þá ár hvert. Að þessu sinni eru 30 milljónir til úthlutunar. Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar. Hægt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar, vöruþróunar, markaðsmála og vegna efniskostnaðar og hönnunar, svo eitthvað sé nefnt.

 

Frekari upplýsingar er að finna hér.

 

Sótt er um styrki á vefsvæðinu www.atvinnumalkvenna.is á rafrænum umsóknareyðublöðum sem þar er að finna.

 

Nánari upplýsingar veitir einnig starfsmaður verkefnisins, Ásdís Guðmundsdóttir, í síma 582 4914 eða í netfanginu asdis.gudmundsdottir@vmst.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31