Tenglar

8. janúar 2014 | vefstjori@reykholar.is

Styrkir til ferðamannastaða

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna uppbyggingar á ferðamannastöðum árið 2014. Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar. Verkefni verða að uppfylla að minnsta kosti eitt af eftirfarandi skilyrðum:

  • Verkefnið er til uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila eða á náttúruverndarsvæðum.
  • Verkefnið er til framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila jafnt sem einkaaðila.
  • Verkefnið er til undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna framkvæmda á ferðamannastöðum eða náttúruverndarsvæðum.

 

Áherslur og ábendingar til umsækjenda

  • Framkvæmdasjóðurinn leggur sérstaka áherslu á verkefni þar sem horft er til heildarmyndar ferðamannastaða og ferðamannaleiða.
  • Framlög til einkaaðila eru háð því skilyrði að um sé að ræða ferðamannastaði sem eru opnir almenningi.
  • Að jafnaði getur styrkur ekki numið hærri upphæð en 50% af kostnaði.

 

Áður en ráðist er í gerð styrkumsókna er nauðsynlegt að kynna sér eftirtalið:

 

Nánar hér

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31