8. janúar 2014 | vefstjori@reykholar.is
Styrkir til ferðamannastaða
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna uppbyggingar á ferðamannastöðum árið 2014. Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar. Verkefni verða að uppfylla að minnsta kosti eitt af eftirfarandi skilyrðum:
- Verkefnið er til uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila eða á náttúruverndarsvæðum.
- Verkefnið er til framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila jafnt sem einkaaðila.
- Verkefnið er til undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna framkvæmda á ferðamannastöðum eða náttúruverndarsvæðum.
Áherslur og ábendingar til umsækjenda
- Framkvæmdasjóðurinn leggur sérstaka áherslu á verkefni þar sem horft er til heildarmyndar ferðamannastaða og ferðamannaleiða.
- Framlög til einkaaðila eru háð því skilyrði að um sé að ræða ferðamannastaði sem eru opnir almenningi.
- Að jafnaði getur styrkur ekki numið hærri upphæð en 50% af kostnaði.
Áður en ráðist er í gerð styrkumsókna er nauðsynlegt að kynna sér eftirtalið:
- Menningarstefna í mannvirkjagerð
- Ný skipulagslög nr. 123/2010
- „Góðir staðir“ - leiðbeiningarit um uppbyggingu ferðamannastaða
- Bæklingurinn Aðgengi fyrir alla
- Handbók um merkingar (pdf 8,6 Mb)
- Matsblað fyrir styrkumsóknir