Tenglar

9. apríl 2009 |

Styrkir til menningar og lista á Vestfjörðum

Það er spurningin ...
Það er spurningin ...

Menningarráð Vestfjarða hefur auglýst eftir styrkumsóknum vegna fyrri úthlutunar á árinu 2009 til menningarverkefna á Vestfjörðum og er þegar nokkuð af umsóknum komið í hús. Um er að ræða styrki til afmarkaðra menningarverkefna og eru umsóknir bornar saman á samkeppnisgrundvelli, þannig að fara þurfa saman áhugaverð verkefni og góðar umsóknir til að líkur séu á að styrkur fáist.

 

Menningarráð Vestfjarða hefur skilgreint ákveðna áhersluþætti við hverja úthlutun til þessa. Við fyrri úthlutun 2009 verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:

 

     a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.

     b. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.

     c. Samstarf milli menningarstofnana, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.

     d. Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum og leikmanna.

     e. Verkefni sem miða að því að listnemar eða ungir listamenn frá Vestfjörðum komi í auknum mæli að listsköpun og menningarstarfi í fjórðungnum.

     f. Viðamikil samstarfsverkefni sem byggja á samstarfi þriggja eða fleiri aðila og leiða til samstarfs milli ólíkra svæða á Vestfjörðum.

 

Umsóknarfrestur er til föstudagsins 17. apríl og er rafrænt umsóknarblað, leiðbeiningar og úthlutunarreglur að finna á vef Menningarráðsins á slóðinni www.vestfirskmenning.is. Allar nánari upplýsingar gefur menningarfulltrúi Vestfjarða, Jón Jónsson, í síma 891 7372 og netfanginu menning@vestfirdir.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31