21. september 2015 |
Styrkir til nýsköpunarverkefna
Átak til atvinnusköpunar er styrkáætlun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með umsóknarferlinu fyrir hönd atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Markmið verkefnisins
- Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta
- Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða frumkvöðla og fyrirtækja
Sérstök áhersla er lögð á
- Verkefni sem skapa ný störf
- Nýsköpun og/eða samstarfsverkefni sem byggja á hönnun
- Nýsköpun sem á sér stað í klasasamstarfi
- Verkefni sem eru að stíga sín fyrstu skref á alþjóðamarkaði
- Verkefni sem fela í sér verulega nýjung eða framþróun frá því sem þekkt er í dag
Umsóknarfrestur til hádegis á mánudag, 28. september.
Allar nánari upplýsingar er að finna hér á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands