Tenglar

4. desember 2009 |

Styrkir til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2010

Ferðamálastofa auglýsir styrki til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2010. Sérstök áhersla verður lögð á verkefni tengd sjálfbærri ferðaþjónustu fyrir alla sem hafa heildrænt skipulag og langtíma markmið að leiðarljósi. Á vef stofunnar segir að stefna íslenskra stjórnvalda sé að ferðaþjónustan í landinu starfi sem mest í anda sjálfbærni. Liður í því sé markviss uppbygging og fyrirbyggjandi aðgerðir til verndunar íslenskrar náttúru.

 

Styrkirnir skiptast í tvo meginflokka:

 

1. Styrkir til smærri verkefna er varða úrbætur á ferðamannastöðum.

Veittir verða styrkir til smærri verkefna til úrbóta í umhverfismálum. Hámarksupphæð hvers styrks verður 500 þúsund krónur og er hann ætlaður fyrir efniskostnaði. Ekki er veittur styrkur vegna vinnuframlags. Styrkþegi er ábyrgur fyrir eðlilegu viðhaldi svæðis og mannvirkja er tengjast viðkomandi verkefni eftir að framkvæmdum lýkur.

 

2. Styrkir til uppbyggingar á fjölsóttum ferðamannastöðum og nýjum svæðum.

Veittir verða styrkir til úrbóta í umhverfismálum og uppbyggingar á nýjum svæðum fyrir ferðamenn. Styrkupphæð getur að hámarki orðið 50% af kostnaðaráætlun. Verkefni þar sem skipulag, fullnaðarhönnun og framkvæmdaleyfi liggur fyrir njóta áfram forgangs en nú verður einnig hægt að sækja um styrki fyrir skipulags- eða hönnunarvinnu ásamt undirbúningsrannsóknum. Sérstök áhersla verður lögð á að styrkja verkefni sem hafa sjálfbærni og langtímamarkmið í umhverfismálum að leiðarljósi. Ferðamálastofa áskilur sér rétt til að fara yfir skipulag og hönnun á viðkomandi svæði ásamt þeim forsendum sem þar liggja að baki.

 

Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 2010.

 

Nánari upplýsingar um skilmála og annað er að finna hér. Jafnframt er þar að finna rafrænt umsóknarform.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31