Tenglar

30. apríl 2013 | vefstjori@reykholar.is

Styrkir til vestfirsks námsfólks á lokastigum háskóla

Vaxtarsamningur Vestfjarða, Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða og Háskólasetur Vestfjarða auglýsa til umsóknar styrki fyrir námsmenn á lokastigum síns náms. Lögð er áhersla að styðja háskólanema frá Vestfjörðum (þ.e. með lögheimili á Vestfjörðum, þar á meðal í Reykhólahreppi, eða í námi í gegnum Háskólasetur Vestfjarða). Umsóknarfrestur er til 14. maí.

 

Verkefni eiga að tengjast rannsóknum, nýsköpun og þróun í ákveðinni atvinnugrein eða fyrir atvinnulífið í heild sinni og eiga verkefnin að miðast við uppbyggingu samfélags og atvinnulífs á Vestfjörðum. Gerð er krafa um samstarf við fyrirtæki eða stofnun innan Vestfjarða eða stofnun á landsvísu, sem sinnir málefnum Vestfjarða, og krafa um að a.m.k. eitt fyrirtæki eða stofnun komi að verkefninu.

 

Sjá nánar hér

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Oktber 2024 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31