Tenglar

22. október 2015 |

Styrkir vegna náms og tækjakaupa fatlaðs fólks

Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks vekur athygli á rétti lögum samkvæmt til að sækja um styrki. Samlaginu er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra- og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðu fólki að skapa sér atvinnu.

 

Umsóknarfrestur er til 23. nóvember 2015 og skulu umsóknir berast til félagsþjónustu lögheimilissveitarfélags. Umsóknareyðublöð og reglur um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa fást hjá viðkomandi félagsþjónustu.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31