Tenglar

18. október 2016 | Umsjón

Styrkir vegna náms og tækjakaupa fatlaðs fólks

Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks vekur athygli á rétti lögum samkvæmt (27. grein) til að sækja um styrki. Samlaginu er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing.

 

Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra- og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist hún hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðu fólki að skapa sér atvinnu.

 

Umsóknarfrestur er til 13. nóvember 2016 og skulu umsóknir berast til félagsþjónustu lögheimilissveitarfélags. Umsóknareyðublöð og reglur um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa er að finna hjá viðkomandi félagsþjónustu.

 

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31