Tenglar

7. desember 2013 | vefstjori@reykholar.is

Styrkir vegna námskostnaðar eða tækjakaupa fatlaðra

Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks vekur athygli á réttinum til að sækja um styrki. Samlaginu er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur skv. ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra- og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðum að skapa sér atvinnu.

 

Rétturinn til að sækja um þessa styrki byggist á 27. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum.

 

Umsóknarfrestur er til 3. janúar 2014 og skulu umsóknir berast félagsþjónustu lögheimilissveitarfélags. Umsóknareyðublöð og reglur um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa er að finna hjá viðkomandi félagsþjónustu.

 

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31