Tenglar

1. desember 2009 |

Styrkjum Menningarráðs úthlutað á Reykhólum

Jón Jónsson á Kirkjubóli, menningarfulltrúi Vestfjarða.
Jón Jónsson á Kirkjubóli, menningarfulltrúi Vestfjarða.
Seinni úthlutun styrkja Menningarráðs Vestfjarða á árinu 2009 fer fram í húsakynnum Hlunnindasýningarinnar á Reykhólum núna á föstudaginn, 4. desember. Athöfnin sem er öllum opin hefst kl. 16. Verða þar afhent vilyrði um styrki frá Menningarráði Vestfjarða, en alls fá 37 verkefni framlög að þessu sinni. Styrkirnir eru á bilinu 150 þúsund til 1 milljón króna, samtals að upphæð 18,5 milljónir. Umsóknir sem bárust að þessu sinni voru 89 og var samtals beðið um 75 milljónir í verkefnastyrki.

 

Styrkirnir fara til margvíslegra verkefna, sem sýna að sóknarhugur og bjartsýni eru ríkjandi í vestfirsku menningarlífi, þrátt fyrir þrengingar og niðurskurð á fjölmörgum sviðum í samfélaginu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Jóni Jónssyni á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð, menningarfulltrúa Vestfjarða.

 

Öllum styrkumsóknum sem bárust hefur verið svarað í tölvupósti í þau netföng sem gefin voru upp í umsóknum með niðurstöðu hvað varðar einstakar umsóknir. Heildarlisti um styrkt verkefni verður birtur á vef Menningarráðsins og sendur fjölmiðlum eftir athöfnina á Reykhólum. Menningarráð Vestfjarða mun næst auglýsa eftir umsóknum um styrki fljótlega á nýju ári.

 

Athöfnin er sem áður segir opin öllum og þeir sem standa í eldlínunni í menningarstarfi á Vestfjörðum og sveitarstjórnarmenn eru sérstaklega boðnir velkomnir. Á dagskrá eru erindi og afhending styrkja og í lokin á þessari formlegu athöfn verður boðið upp á léttar veitingar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31