12. september 2011 |
Styttur afgreiðslutími á skrifstofu Reykhólahrepps
Afgreiðslutími og þá jafnframt símatími á skrifstofu Reykhólahrepps hefur nú verið styttur um eina klukkustund á dag. Framvegis verður opið virka daga kl. 10-14 en ekki fram til kl. 15 eins og verið hefur. Byggingafulltrúi, félagsmálastjóri og banki eru þó eftir sem áður með viðtalstíma og afgreiðslutíma á skrifstofunni á sama tíma og á sömu dögum og áður:
Viðverutími byggingafulltrúans á skrifstofunni er á mánudögum kl. 10-15, viðverutími félagsmálastjórans er á þriðjudögum kl. 10-15 og afgreiðslutími útibús Landsbankans í Króksfjarðarnesi á miðvikudögum kl. 13-15.