Tenglar

11. maí 2009 |

Suðursvæði Vestfjarða hefur setið á hakanum

Málþingið Sókn í eflingu atvinnulífs á suðursvæði Vestfjarða, sem haldið var á Bíldudal í síðustu viku, vekur athygli stjórnvalda á því að suðursvæði Vestfjarða hefur ekki notið sambærilegrar uppbyggingar á opinberum sviðum síðustu áratugi og ýmis önnur svæði, einkum á suðvesturhorni landsins. Má í því sambandi t.d. nefna samgöngumannvirki, vegi og flugvelli, raforkuframleiðslu- og raforkuflutningskerfi, flutning opinberra starfa o.fl. Þetta hefur leitt til hjöðnunar í hagvexti, rýrt tekjur heimila og fyrirtækja, verðfellt fasteignir og orðið þess valdandi að fólk hefur flust af svæðinu, segir í ályktun þingsins.

 

Nú þegar þrengir að í þjóðarbúskapnum er mikilvægt að stjórnvöld taki tillit til þessarar stöðu og láti kreppuna ekki bitna með sama þunga á Vestfjörðum og suðvesturhorninu. Það er mjög ósanngjarnt að þau landsvæði sem tóku á sig áföllin vegna ofurþenslu síðustu ára þurfi nú að taka skellinn vegna kreppunnar, segir einnig í ályktuninni.

 

Málþingið minnir stjórnvöld á þá staðreynd að sóknarfærin í endurreisn íslensks efnahags, þjóðarbúskapar, efling atvinnulífsins og öflun aukinna útflutningstekna, eru einna mest á landsbyggðinni. Þess vegna krefst málþingið þess að væntanleg ríkisstjórn leggi aukið vægi og áherslur á atvinnulíf og búsetujafnrétti á landsbyggðinni og að þess sjáist merki bæði í stefnuskrá og aðgerðum við skipan nýrrar ríkisstjórnar.

 

Suðursvæði Vestfjarða býr yfir miklum auðlindum til lands og sjávar og mannauð sem getur látið til sín taka í þágu lands og þjóðar. Við munum ekki láta okkar eftir liggja og óskum eftir hvatningu og stuðningi stjórnvalda, segir að lokum í ályktuninni, sem send var öllum þingmönnum Norðvesturkjördæmis. Jafnframt var Ásbirni Óttarssyni, fyrsta þingmanni kjördæmisins, falið að koma henni til ríkisstjórnarinnar.

 

28.04.2009 Málþing um atvinnulíf á suðursvæði Vestfjarða

07.05.2009 Krunkað saman við höfnina á Bíldudal

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31