Sumardagurinn fyrsti - Barmahlíðardagurinn - dagskrá
Barmahlíðardagurinn hefur lengi verið haldinn hátíðlegur á Reykhólum á sumardaginn fyrsta. Enda þótt hann hafi í byrjun verið kenndur við Dvalarheimilið Barmahlíð (og sé það enn í dag) hefur dagskráin a.m.k. á síðari árum alls ekki verið einskorðuð við heimilið þó að hluti hennar sé þar.
Dagskráin á Reykhólum fyrsta sumardag 2012 (fimmtudag 19. apríl):
Barmahlíð
(allir hjartanlega velkomnir í heimsókn)
Kl. 13 Helgistund, sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir.
Handavinnusýning íbúa Barmahlíðar.
Kl. 13.30 Bingó eldri borgara.
Kl. 14 Ásdís Jónsdóttir og Hafliði Ólafsson leika nokkur lög.
Kl. 14.30 Hestarnir Lukka, Viska og Örn koma í heimsókn í Barmahlíð, heilsa upp á mannskapinn og leyfa krökkum að bregða sér á bak.
Matsalur Reykhólaskóla
Kl. 15-16 Kvenfélagið Katla með kaffi og léttar veitingar til sölu.
Kl. 16 Bingó fyrir alla á vegum 8.-10. bk. Reykhólaskóla. Spjaldið kostar 500 kr. Enginn posi. Veglegir vinningar. Sjoppa á staðnum.
Grettislaug er opin kl. 16-20.
Hlökkum til að sjá ykkur öll. Gleðilegt sumar!