Tenglar

3. nóvember 2016 | Umsjón

Sumardvöl í sveit - sýning í Sævangi

Sýningin Sumardvöl í sveit á Sauðfjársetrinu í Sævangi við Steingrímsfjörð verður opnuð núna á sunnudaginn 6. nóvember kl. 15. Þar segir frá reynslu þeirra sem fóru í sveit og þeirra sem tóku á móti sumardvalarbörnum, einkum á Ströndum. Hægt er að heimsækja sveitaheimili, fara í leiki, endurupplifa ferðalag í sveitina, hlusta á sögur af Ströndum og fræðast um siðina.

 

Strandakonurnar Esther Ösp, Dagrún Ósk og Sunneva Guðrún segja stuttlega frá aðkomu sinni að verkefninu  og leiðsegja fólki um sýninguna, sem er hönnuð til að höfða til allra aldurshópa. Íris Björg verður með tónlistaratriði.

 

Viðburðurinn er hugsaður fyrir alla fjölskylduna. Fleiri viðburðir tengdir sýningunni verða á dagskrá í vetur. Öll hjartanlega velkomin!

 

Vöffluhlaðborð á 1.200 kr. fyrir fullorðna og 600 kr. fyrir 6-12 ára.

 

– Upplýsingar og teikning: Sumardvöl í sveit.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31