Tenglar

29. maí 2012 |

Sumarnámskeið á Hólmavík fyrir 6-13 ára

Hólmavík / Jón Halldórsson.
Hólmavík / Jón Halldórsson.

Sumarnámskeiðið Viltu koma út að leika? verður haldið á Hólmavík í sumar fyrir börn á aldrinum 6-13 ára. Námskeiðið mun standa í tvær vikur alla virka daga á tímabilinu 9.-20. júlí og fer að öllu leyti fram utandyra. Þessi skemmtilega hugmynd og framkvæmd hennar kemur frá systrunum Árnýju Huld og Guðmundínu Arndísi Haraldsdætrum, sem eru jafnframt leiðbeinendur á námskeiðinu.

 

Helstu viðfangsefni á námskeiðinu eru skynfæri og hreyfigeta, útileikir, þrautir, sögur og ævintýri. Þáttakendum verður skipt í tvo hópa, 6-10 ára og 11-13 ára. Yngri hópurinn verður kl. 10-12 og eldri hópurinn kl. 13-15.

 

Verð fyrir námskeiðið er kr. 10.000 fyrir hvert barn. Veittur er systkinaafsláttur á þann veg að greiddar eru kr. 7.500 fyrir annað barn og kr. 5.000 fyrir þriðja og fjórða barn.

 

Skráning fer fram hjá Árnýju í netpósti eða í síma 848 4090. Fólk er beðið að skrá börn til leiks í síðasta lagi sunnudaginn 1. júlí. Ef lágmarksfjöldi næst ekki fellur námskeiðið niður.

 

Myndina tók hinn ágæti og ötuli myndabloggari Jón Halldórsson á Hólmavík í síðustu viku.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31