Tenglar

6. júlí 2015 |

Sumarstarfskraftur óskast

Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum leitar að sumarstarfsmanni í hlutastarf. Aldurstakmark er 18 ár. Um er að ræða ákveðin tímabil núna í sumar, þá sérstaklega í næsta mánuði eða 7.-17. ágúst og 28.-31. ágúst. Í þessum mánuði er um að ræða 13.-20. júlí og 23.-26. júlí. Auk þess myndi viðkomandi þurfa að koma í þjálfun núna sem fyrst. Leitað er eftir einhverjum sem getur tekið hluta af þessum tíma eða allt.

 

Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir, duglegir og samviskusamir og hafi gaman af samskiptum við fólk. Jafnframt að þeir þekki Reykhólahrepp vel og það sem hann hefur að bjóða. Mikilvægt er að umsækjendur búi yfir kunnáttu í erlendum tungumálum, þá sérstaklega ensku, og reynsla af þjónustustörfum er kostur.

 

Hlutverk starfsmanna Báta- og hlunnindasýningarinnar er að afgreiða á sýningunni og í minjagripaverslun og veita leiðsögn um sýninguna eftir þörfum. Einnig sjá starfsmenn um bakstur og afgreiðslu á kaffihúsinu okkar, sem er að hefja sitt þriðja starfsár. Líka er um að ræða almenn störf á upplýsingamiðstöðinni sem er á sama stað.

 

Óskað er eftir aðila sem hefur áhuga á að aðstoða við markaðssetningu og skipulagningu viðburða á sýningunni og í tengslum við hana, eins og hlut sýningarinnar í Reykhóladögum og fleira.

 

Vinnutíminn er frá 10.45 til 17.15. Báta- og hlunnindasýningin er opin alla daga sumarið 2015 frá 1. júní til 31. ágúst.

 

Óskað er eftir umsóknum í netfangið info@reykholar.is. Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að senda þær í sama netfang.

 

Harpa Eiríksdóttir,

framkvæmdastjóri Báta- og hlunnindasýningarinnar á Reykhólum. 

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31